Al-Gharafa með fjög­urra stiga for­skot

Aron Einar og samherjar hans í Al-Gharafa eru með fjög­urra stiga for­skot á toppnum.
Ljósmynd/qsl.qa

Aron Einar Gunnarsson og liðsfélagar hans í Al-Gharafa tryggðu sér dýrmætan 2:1-sigur á Qatar SC í úrvalsdeildinni í Katar í kvöld og eru nú fjórum stigum á undan næsta liði í toppbaráttunni.

Al-Gharafa lenti í vandræðum undir lok fyrri hálfleiks þegar leikmaður liðsins fékk rautt spjald og gestirnir komust yfir skömmu síðar. Heimamenn létu það þó ekki slá sig út af laginu og sneru vörn í sókn í seinni hálfleik. Liðið jafnaði úr vítaspyrnu eftir klukkutíma leik og skoraði svo sigurmark á síðustu mínútunni.

Aron Einar lék á miðjunni og var skipt af velli á 82. mínútu eftir góða frammistöðu. Með sigrinum hefur Al-Gharafa 22 stig á toppi deildarinnar, fjórum stigum meira en Al-Shamal í öðru sæti og fimm stigum meira en Qatar SC sem er þriðja sæti.

Davíð Kristján Ólafsson var enn og aftur ónotaður varamaður hjá liði sínu Cracovia sem tapaði 3:0 gegn Radomiak Radom í pólsku úrvalsdeildinni. Cracovia er í 5. sæti deildarinnar eftir 14 umferðir en Davíð Kristján hefur ekki komið við sögu í síðustu átta leikjum liðsins.

Fyrri frétt

Fékk rautt fyrir ljótt brot

Næsta frétt

Þrennan hjá Emelíu – Myndband