Stefán Ingi Sigurðarson skoraði þrettánda deildarmark sitt á tímabilinu þegar Sandefjord vann 3:1-útisigur á Molde í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Stefán kom Sandefjord í 2:1 rétt fyrir leikhlé með skallamarki af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá vinstri. Stefán lék í fremstu víglínu og var tekinn af velli á 70. mínútu leiksins.
Stefán er þriðji markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar með 13 mörk á tímabilinu. Markið hans í leiknum má sjá á vef TV2 í Noregi. Sandefjord er í fimmta sæti deildarinnar með 37 stig eftir 24 umferðir.
Júlíus lagði upp í stórsigri Elfsborg
Júlíus Magnússon lagði upp eitt marka Elfsborg í 5:1-stórsigri liðsins gegn Östers í sænsku úrvalsdeildinni.
Júlíus, sem lék allan leikinn á miðjunni, átti laglega fyrirgjöf á samherja sinn sem skoraði skallamark og kom Elfsborg í 3:1 snemma í seinni hálfleik. Ari Sigurpálsson lék í 77 mínútur fyrir Elfsborg en hann hóf undirbúninginn að markinu sem Júlíus lagði upp, sem má sjá hér að neðan.
Elfsborg er í 8. sæti deildarinnar með 40 stig eftir 27 umferðir.
Logi Hrafn Róbertsson og Danijel Dejan Djuric komu báðir inn á sem varamenn hjá IK Istra þegar liðið tapaði 3:0 fyrir Hajduk Split í króatísku úrvalsdeildinni. IK Istra er í 6. sæti af 10 liðum með 12 stig eftir tíu umferðir.
Ísak Snær Þorvaldsson lagði upp mark í 3:3 jafntefli Lyngby gegn Aarhus Fremad í dönsku B-deildinni. Ísak kom inn af bekknum þegar rúmur klukkutími var liðinn af leiknum og lagði upp aðeins nokkrum mínútum síðar. Lyngby er í öðru sæti deildarinnar með 23 stig, aðeins einu stigi á eftir toppliði Hillerød eftir 13 umferðir.