Hildur skoraði í stórsigri – Myndband

Hildur skoraði í stórsigri á Spáni.
Ljósmynd/Madrid CFF

Hildur Antonsdóttir skoraði eitt marka Madrid CFF í 5:2-sigri liðsins á Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Espanyol komst yfir snemma leiks, en Madrid jafnaði á 26. mínútu. Hildur kom Madrid síðan í 2:1 á 40. mínútu með skallamarki eftir hornspyrnu. Madrid bætti við mörkum rétt fyrir leikhlé og réði ferðinni það sem eftir var.

Madrid CFF er í 6. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 13 umferðir.

Fyrri frétt

Glæsilegt aukaspyrnumark Óttars – Myndband

Næsta frétt

Þrennan hjá Söndru – Myndband