Þrennan hjá Söndru – Myndband

Sandra María fór á kostum og gerði þrennu fyrir Köln í byrjun vikunnar.
Ljósmynd/Imago

Sandra María Jessen fór fremst í flokki þegar Köln sigraði Hamburg, 4:1, í þýsku úrvalsdeildinni í byrjun vikunnar. Hún skoraði þrjú mörk og lagði grunninn að sigrinum.

Sandra kom Köln yfir snemma leiks og tvöfaldaði forystuna síðar í fyrri hálfleik. Eftir leikhlé minnkaði Hamburg muninn um stund en Köln hélt tökum á leiknum. Sandra innsiglaði sigurinn með þriðja marki sínu í uppbótartíma.

Með þrennunni varð Sandra fyrsta íslenska konan til að skora þrjú mörk í einum leik í efstu deild í Þýskalandi. Hún hefur átt afar öfluga leiktíð og hefur nú skorað átta mörk í tólf deildarleikjum. Hún er markahæst í deildinni ásamt tveimur öðrum leikmönnum. Köln er í 8 sæti deildarinnar með 18 stig eftir tólf umferðir.

Þrennuna má sjá hér að neðan.

Fyrri frétt

Hildur skoraði í stórsigri – Myndband

Næsta frétt

Sigurmarkið hjá Alberti – Myndband