Tölvuleikjaframleiðandinn Sega Games Co., Ltd. setti í síðustu viku á markað nýja uppfærslu af hinum geysivinsæla Football Manager-tölvuleik.
Leikurinn gengur út á að setja sig í stellingar knattspyrnustjóra og nýjasta útgáfan, Football Manager 2020, þykir vera mjög vel heppnuð. Spilendur leikjarins hafa möguleika á að stjórna nánast öllu sem viðkemur knattspyrnuliði, en leikurinn er þekktur fyrir gríðarlega stóran gagnagrunn og góða greiningu á leikmönnum.
Enska úrvalsdeildarliðið Everton hefur meðal annars notað tölvuleikinn mikið í gegnum tíðina til að leita að óþekktum og hæfileikaríkum leikmönnum úr ýmsum áttum.
Vefsíðan FMScout gefur á hverju ári út lista yfir þá leikmenn sem eru svokallaðar vonarstjörnur (e. wonderkids) í leiknum. Í ár eru tveir Íslendingar á listanum en það eru Skagamennirnir Arnór Sigurðsson, leikmaður CSKA Moskvu, og Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Norrköping.
Með hverri uppfærslu af leiknum fylgir sérstök útgáfa þar sem hægt er að gera breytingar og fletta upp upplýsingum. Hver og einn leikmaður fær svokallaðan Potential Ability-skala sem gefur til kynna hversu góður leikmaðurinn getur orðið í leiknum. Til að taka dæmi, þá er Vinícius Júnior, einn efnilegasti leikmaður heims, á skalanum 160-190 en sá hæsti er 170-200, sem enginn nær.
Hér að neðan má sjá þá efnilegustu í leiknum frá Íslandi sem fæddir eru árið 1998 eða síðar.
Leikmenn sem leika með liðum erlendis:
140-170 Potential Ability
Arnór Sigurðsson (CSKA Moskva)
130-160
Ísak Bergmann Jóhannesson (IFK Norrköping)
120-150
Jón Dagur Þorsteinsson (AGF)
Patrik Sigurður Gunnarsson (Brentford)
110-140
Mikael Anderson (Midtjylland)
100-130
Kolbeinn Þórðarson (Lommel)
Kolbeinn Birgir Finnsson (Borussia Dortmund)
Kristófer Ingi Kristinsson (Grenoble Foot 38)
Ísak Óli Ólafsson (SønderjyskE)
Willum Þór Willumsson (BATE Borisov)
Sveinn Aron Guðjohnsen (Spezia)
Atli Barkarson (Fredrikstad FK)
Andri Fannar Baldursson (Bologna)
Andri Lucas Guðjohnsen (Real Madrid B)
Hákon Arnar Haraldsson (FC Kaupmannahöfn)
Guðmundur Andri Tryggvason (Start)
Adam Ingi Benediktsson (IFK Göteborg)
Danijel Djuric (Midtjylland)
Kristall Máni Ingason (FC Kaupmannahöfn)
Alfons Sampsted (IFK Norrköping)
90-120
Daníel Hafsteinsson (Helsingborgs IF)
Ísak Snær Þorvaldsson (Norwich)
Teitur Magnússon (OB)
Jökull Andrésson (Reading)
Oliver Stefánsson (IFK Norrköping)
Mikael Egill Ellertsson (SPAL)
Elías Rafn Ólafsson (Midtjylland, á láni hjá Aarhus Fremad)
80-110 eða minna
Orri Hrafn Kjartansson (sc Heerenveen)
Jake Pétur Martin (Strømmen)
Nikola Djuric (Midtjylland)
Arnór Borg Guðjohnsen (Swansea)
Aron Ingi Andreasson (FC Hennef 05)
Hannes Bergmann Bordal (Rosenborg)
Aron Már Brynjarsson (Torns IF)
Benedikt Axelsson (Aalborg)
━━━━━━━━
Leikmenn sem leika með liðum hérlendis:
120-150 Potential Ability
Valgeir Valgeirsson (HK)
110-140
Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Eyþór Orri Ómarsson (ÍBV)
100-130
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Davíð Snær Jóhannsson (Keflavík)
Jón Gísli Eyland (ÍA)
Þórir Jóhann Helgason (FH)
Valgeir Lunddal (Valur)
Baldur Logi Guðlaugsson (FH)
Sölvi Snær Guðbjargarson (Stjarnan)
Finnur Tómas Pálmason (KR)
Ari Sigurpálsson (HK, láni hjá Bologna)
Ólafur Kristófer Helgason (Fylkir)
Rafal Stefán Daníelsson (Fram)
Guðmundur Tyrfingsson (Selfoss)