Skalla­mark Söndru – Myndband

Sandra María skoraði skallamark fyrir Köln í tapi gegn Bayern München.
Ljósmynd/Köln

Sandra María Jessen hélt áfram að láta til sín taka í þýsku úrvalsdeildinni í gær þegar hún skoraði fyrir Köln í 1:5-tapi á útivelli gegn ríkjandi meisturum Bayern München.

Sandra María kom Köln yfir með laglegu skallamarki eftir hornspyrnu snemma leiks, en heimakonur jöfnuðu skömmu fyrir leikhlé og tryggðu sér öruggan sigur með fjórum mörkum í seinni hálfleik.

Sandra María hefur verið áberandi hjá Köln í upphafi tímabilsins og er nú komin með sex mörk í öllum keppnum. Liðið situr í 10. sæti deildarinnar með sjö stig eftir sjö umferðir.

Sjá má markið hjá Söndru hér að neðan.

Fyrri frétt

Uppgjör helgarinnar

Næsta frétt

Stefán skoraði og tók óléttufagnið – Myndband