Orri Steinn Óskarsson skoraði bæði mörk Real Sociedad í 2:1 sigri liðsins gegn Yokohama FC í æfingaleik sem fór fram í Japan í dag.
Eftir um korter skoraði Orri með skalla af stuttu færi og hann kom síðan Sociedad í 2:0 með marki úr vítaspyrnu rétt fyrir leikhlé.
Orri lék 37 leiki fyrir spænska liðið í öllum keppnum á síðasta tímabili og skoraði í þeim leikjum sjö mörk. Fyrsti leikur hjá Orra í spænsku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð er þann 16. ágúst gegn Valencia.