Vigdís Lilja Kristjánsdóttir var í aðalhlutverki þegar Anderlecht vann 3:1-útisigur á Club Brugge í belgísku úrvalsdeildinni í fyrradag.
Vigdís Lilja jafnaði metin með marki í fyrri hálfleik og kom Anderlecht svo í forystu strax eftir leikhlé með sínu öðru marki í leiknum. Með þessum mörkum hefur hún nú skorað sex sinnum í síðustu fjórum leikjum sínum, bæði í deild og Evrópukeppni.
Frammistaða hennar hefur verið mikilvægur þáttur í velgengni liðsins, en Anderlecht hefur unnið alla þrjá deildarleiki sína til þessa og situr á toppi belgísku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga.