Mikael fór á kostum í stórsigri – Kolbeinn skoraði og lagði upp

Mikael Neville og Kolbeinn Þórðarson voru í lyk­il­hlut­verk­um hjá liðum sínum í Svíþjóð.
Ljósmynd/Djurgården

Mikael Anderson átti stórleik þegar Djurgården vann afar sannfærandi 8:2-heimasigur á Sirius í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Mikael tvöfaldaði forystu liðsins með marki á 10. mínútu, sem jafnframt var hans fyrsta í sænsku úrvalsdeildinni. Hann bætti við öðru marki sínu á 66. mínútu og átti síðan stoðsendinguna þegar August Priske fullkomnaði þrennu sína með sjöunda marki Djurgården í leiknum.

Mikael var tekinn af velli á 74. mínútu eftir góðan leik. Djurgården hefur verið á miklu skriði að undanförnu og er nú taplaust frá því um miðjan júlí. Liðið situr í 7. sæti deildarinnar með 41 stig eftir 25 umferðir.

Hér að neðan má sjá mörkin tvö hjá Mikael og stoðsendingu hans.

Kolbeinn lykilmaður hjá Gautaborg

Kolbeinn Þórðarson var í lykilhlutverki þegar Gautaborg hafði betur gegn Östers á útivelli, 2:0.

Kolbeinn lagði upp fyrra mark leiksins á 62. mínútu þegar hann tók fast skot sem fór í samherja hans og hafnaði í netinu. Hann bætti síðan sjálfur við marki á 82. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi og innsiglaði þar með sigur Gautaborgar.

Liðið situr nú í 4. sæti deildarinnar með 44 stig og á fimm umferðir eftir til að freista þess að tryggja sér sæti í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Hér að neðan má sjá markið og stoðsendinguna hjá Kolbeini.

Fyrri frétt

Mörkin tvö hjá Vigdísi – Myndband

Næsta frétt

Stefán skoraði tólfta markið