Laglegt mark hjá Daníel í lokaumferðinni – Myndband

Daníel Tristan skoraði einkar laglegt mark í lokaumferðinni í Svíþjóð.
Ljósmynd/Malmö

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði sigurmark Malmö þegar liðið vann 2:1-sigur á GAIS í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.

GAIS komst yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en Malmö jafnaði snemma í seinni hálfleik. Á 62. mínútu skoraði Daníel Tristan svo sigurmarkið, þar sem hann fór illa með varnarmann GAIS og kláraði færið örugglega, sem má sjá hér að neðan.

Daníel Tristan var í byrjunarliði Malmö og sýndi góð tilþrif áður en hann fór af velli undir lok leiks. Arnór Sigurðsson var fjarverandi vegna meiðsla. Malmö endaði tímabilið í 6. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 49 stig.

Mikael Neville Anderson gat ekki leikið með Djurgården í 3:1-útisigri liðsins á Östers vegna meiðsla. Djurgården endaði í 5. sæti með 49 stig, betri markatölu en Malmö.

Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn fyrir Gautaborg sem hafði betur gegn Norrköping, 2:0, í Íslendingaslag. Ísak Andri Sigurgeirsson lék allan leikinn fyrir Norrköping og Arnór Ingvi Traustason fyrstu 73 mínúturnar. Jónatan Guðni Arnarsson kom inn af bekknum hjá Norrköping rétt undir lokin.

Gautaborg endaði í 4. sæti með 51 stig, aðeins einu stigi frá Evrópusæti. Norrköping bjargaði sér ekki frá fallumspilssæti og stendur nú frammi fyrir tveggja leikja einvígi gegn Örgryte um sæti sitt í úrvalsdeildinni.

Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg sem tapaði 3:0 fyrir Hammarby. Júlíus lék í 88 mínútur en Ari Sigurpálsson var ónotaður varamaður hjá Elfsborg, sem endaði í 8. sæti með 40 stig.

Hlynur Freyr Karlsson sat allan tímann á varamannabekknum hjá Brommapojkarna sem tapaði 1:3 fyrir Degerfors. Brommapojkarna endaði í 12. sæti með 31 stig.

Fyrri frétt

Þrennan hjá Emelíu – Myndband

Næsta frétt

Öruggur á vítapunktinum gegn gömlu félögunum – Myndband