Hákon fljót­ur að skora í Róm – Sjáðu markið

Það tók Hákon Arnar aðeins sex mínútur að koma Lille yfir gegn Roma í Evrópudeildinni.
Ljósmynd/Lille

Það tók Hákon Arnar Haraldsson aðeins sex mínútur að koma Lille yfir í útileik liðsins gegn Roma í Evrópudeildinni.

Hákon fékk boltann í teignum eftir mistök hjá varnarmönnum Roma og skoraði með föstu skoti sem fór framhjá Mile Svilar í markinu. Þetta er annar leikur Lille í deildarkeppninni og með sigri í Róm gæti franska liðið haldið áfram með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.

Eftir liðlega hálftíma leik í fyrri hálfleiknum heldur Lille áfram að leiða á Olimpico-leikvanginum.

Sjáðu markið

Fyrri frétt

Ungir og efnilegir leikmenn á skotskónum

Næsta frétt

Sævar kom Brann yfir – Sjáðu markið