Tyrkneska liðinu Elazığspor barst í gær styrkur að upphæð 63 þúsundum evra, sem samsvarar rúmum 9 milljónum í íslenskum krónum, frá Theodóri Elmari Bjarnasyni, sem lék með liðinu frá 2017 til 2018. Elazığspor sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis í gær.
Öflugur jarðskjálfti, 6,8 að stærð, reið yfir Elazig-hérað í Tyrklandi þann 24. janúar síðastliðinn og fjöldi eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið. Í kringum 40 dauðsföll hafa verið staðfest. Elazığspor-liðið er staðsett í samnefndri héraðshöfuðborg.
Elazığspor hóf núverandi leiktíð í tyrknesku C-deildinni og fyrir nokkrum dögum óskaði liðið eftir því að draga sig úr keppni vegna jarðskjálftanna. Tyrkneska knattspyrnusambandið varð við þeirri beiðni og ætlar að leyfa liðinu að vera í sömu deild á næstu leiktíð.
Elazığspor-liðið sá ekki ástæðu til þess að halda áfram keppni í deildinni. Talsverðar skemmdir urðu á æfingasvæði liðsins og allir í kringum liðið hafa átt erfitt uppdráttar á síðustu vikum, en 19 leikmenn liðsins ólust upp í Elazig-héraði. Þá hafði liðið engan áhuga á því að færa sig um set í einhvern ákveðinn tíma.
Selçuk Öztürk, forseti Elazığspor, kom sérstöku þakklæti á framfæri til Theodórs Elmars á fréttamannafundi í gær og greindi frá því að hann ætti von á fleiri framlögum frá fyrrum leikmönnum liðsins. Aðdáendur Elazığspor eru síðan gífurlega þakklátir fyrir stuðninginn og margir eru búnir að senda Theodóri falllegar kveðjur á samfélagsmiðlum.