Orri Steinn jafnaði fyrir Real Sociedad – Myndband

Orri Steinn jafnaði metin fyrir Real Sociedad með laglegu marki.
Ljósmynd/elnacional.cat

Orri Steinn Óskarsson kom sterkur inn af bekknum þegar Real Sociedad gerði 2:2 jafntefli við Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld.

Heimamenn í Espanyol leiddu 2:0 í hálfleik eftir mörk í upphafi leiks og í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Real Sociedad svaraði í síðari hálfleik, minnkaði munin á 61. mínútu og átta mínútum síðar jafnaði Orri metin með vel útfærðu marki.

Það reyndust lokatölur leiksins og situr Real Sociedad nú með tvö stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Næsta verkefni bíður liðsins á laugardag þegar það mætir Real Oviedo á útivelli.

Fyrri frétt

Albert með stoðsendingu í fyrsta leik tímabilsins – Myndband

Næsta frétt

Bjarki Steinn skoraði í sigri Venezia – Myndband