Stefán Teitur Þórðarson skoraði eina markið í fyrsta undirbúningsleik enska liðsins Preston North End á útivelli gegn Chorley í gær.
Stefán gekk í raðir Preston frá danska liðinu Silkeborg í fyrrasumar og lék alls 47 leiki í öllum keppnum á síðustu leiktíð með enska liðinu, sem endaði í 20. sæti ensku B-deildarinnar og rétt slapp við fall.
Fyrsti leikur Preston í ensku B-deildinni á komandi leiktíð verður þann 9. ágúst gegn QPR.
Markið hans Stefáns má sjá hér að neðan.