Kristian skoraði í bikarnum – Myndband

Kristian var á skotskónum í bikaranum í Hollandi.
Ljósmynd/Twente

Kristian Nökkvi Hlynsson var á skotskónum í fyrradag þegar Twente vann Spakenburg, 6:3, á útivelli í 32-liða úrslitum hollensku bikarkeppninnar.

Twente átti í talsverðu basli með andstæðinginn framan af og leiddi aðeins með einu marki í hálfleik. Eftir hléið snerist leikurinn þó hratt Twente í vil og markahrinan hófst af krafti.

Kristian skoraði fjórða mark Twente á 73. mínútu og átti þar sinn þátt í öruggum sigri liðsins og sæti í næstu umferð bikarkeppninnar. Markið er hér að neðan.

Fyrri frétt

Nökkvi lét til sín taka – Myndband

Næsta frétt

Lagði upp sigurmarkið – Myndband