Andri Lucas Guðjohnsen var á skotskónum þegar Blackburn Rovers vann 2:0-heimasigur á Millwall í ensku B-deildinni í dag. Sigurinn var kærkominn eftir langa hrinu án sigurs.
Andri kom Blackburn yfir strax á 3. mínútu þegar hann fylgdi vel eftir frákasti í teignum. Forystan var tvöfölduð undir lok fyrri hálfleiks þegar Yuki Ohashi skoraði annað mark heimamanna og þar við sat.
Með markinu er Andri kominn með sjö mörk í deildinni í vetur og hefur hann skorað fjórum sinnum í síðustu sjö leikjum. Blackburn er nú í 20. sæti með 25 stig eftir 21 umferð.